Á nýju ári mun Íþróttaskóli fjölskyldunnar taka upp nýtt nafn og verða Íþrótta- og heilsuskólinn. Við munum bjóða upp á fræðslu- og ráðgjöf um hreyfingu fyrir alla aldurshópa. Með vorinu er svo stefnt að því að bjóða upp á ýmis námskeið fyrir börn, unglinga og fullorðna.
Einnig sérhæfum við okkur í hópefli og heilsueflingu inn á vinnustöðum. Nánari upplýsingar munu koma inn á heimasíðuna á næstu dögum. Endilega fylgist með nýju og spennandi íþrótta- og heilsuári 2018.
1 Comment
|
Skjalasafn
December 2017
HöfundurBjarney Gunnarsdóttir umjónaraðili Íþróttaskólans. Flokkar |